París og aðrir leikir, 1998-2001.

Laugardaginn 26.maí kl. 16.00 opnar Birgir Snæbjörn Birgisson sýningu á teikningum í galleri@hlemmur.is, Þverholti 5. Sýningin ber yfirskriftina París og aðrir leikir, 1998-2001.

Í teikningunum dregur Birgir upp myndir af leikjum. Teikningin heldur utan um leikinn og reglur hans. Án leiksins eru teikningarnar óhlutbundnar og framandi.  Án teikningarinnar er enginn leikur. Leikirnir birtast sem skuggar í grasi sem festir þá við jörðina; vettvang þeirra.

Skuggar í grasi og bælt gras fela einnig í sér óljósa frásögn, leifar einhvers sem er, eða hefur verið. Leikirnir vekja grun um nærveru manna, hugmyndir þeirra og athafnir.

Sýningin stendur til 17 júní. og er opin frá kl. 14.00-18.00 fimmtudaga til sunnudaga.