Fréttatilkynning

 

Fréttatilkynning frá Gallerí Hlemmi:

Meindýrafaraldur úr kókdósum.

Laugardaginn 5. apríl klukkan 16:00 opnar sænski listamaðurinn Thomas
Broomé sýninguna  "Locust" í Gallerí Hlemmi. Thomas Broomé hefur haldið
fjölda sýninga bæði í Svíþjóð sem og á alþjóðlegum vettvangi. Hann hefur
tekið þátt í nokkrum verkefnum á vegum Smart Studio/Interactive Institute
s.s verkefnunum BrainBall og BrainBar og er virtur fyrirlesari á sviði
margmiðlunarlista (mediaart).

Sýningin samanstendur af sexhundruð engisprettum sem gerðar eru úr
kókdósum. Ásamt engisprettuhljóðunum sem mynda þrívítt hljóðumhverfi vekur
verkið upp heimsendalega sýn af vörumerki sem fjölgar sér í stöðugri leit
að gróða. Vörumerki sem orðið hefur að risa og ýtir undir múgsefjun og
eyðileggur allt sem í vegi þess verður.


Vissir þú að Coca-Cola var selt sem meðal í
lyfjaverslunum?

Vissir þú að Coca-Cola er notað til að hreinsa ryðgaða nagla?

Vissir þú að Coca-Cola er selt á svörtum markaði í Íran?

Vissir þú að Coca-Cola hefur stuðlað að heimsfriði?

Vissir þú að spegilmynd orðsins Coca-Cola á arabísku er:
"Enginn Muhammed ekkert Mekka"

Sýningin stendur til 27. apríl. Gallerí Hlemmur er opinn fimmtudaga til
sunnudaga frá klukkan 14:00 til 18:00.